Fór í útlegð frá Kúbu til Miami

Kúbanskur listamaður og andófsmaður, Luis Manuel Otero Alcantara, fór í útlegð frá Kúbu til Miami á Flórída í gær. Hann lauk fangelsisdómi nýverið eftir að hafa setið fimm ár í fangelsi á Kúbu. Hann leiddi mótmælahreyfingu listamanna og menntamanna en var handtekinn árið 2021.Utanríkisráðherra Bandaríkjanna Marco Rubio segir mótmælahreyfingu Otero Alcantara vonarneista fyrir Kúbu. Rubio sagði að eini glæpur hans hefði verið að hafna því að sitja hjá aðgerðalaus og hann hefði nýtt list sína til að krefjast grundvallarréttinda sem Kúbverjum hafi verið neitað um í næstum sjö áratugi.Rubio sagði í yfirlýsingu að bandarísk stjórnvöld krefjist þess að stjórnvöld á Kúbu láti lausa yfir 700 pólitíska fanga sem sitja í fangelsum í landinu. Hann sagði að alþjóðasamfélagið verði að hætta að horfa fra
Fór í útlegð frá Kúbu til Miami

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd