Forseti Ungverjalands, Tamas Sulyok, hefur samþykkt að láta af embætti. Hann undirritaði í gær viðauka við stjórnarskrá landsins, sem mun binda enda á forsetatíð hans á miðnætti í kvöld. Forsætisráðherra Ungverjalands, Péter Magyar, og Tisza-flokkurinn áttu frumkvæði að breytingunum á stjórnarskránni sem kynntar voru á mánudag.Magyar lofaði breytingum á stjórnkerfi landsins í þingkosningunum í apríl og tiltekt í kerfinu. Hann hefur kallað forsetann og fleiri hátt setta embættismenn leikbrúður Viktors Orbans fyrrverandi forsætisráðherra.Í valdatíð Orbans voru gerðar ýmsar breytingar innan stjórnkerfisins og bandamönnum Orbans var komið fyrir í hinum ýmsu stöðum innan þess. Magyar hefur margoft hvatt Sulyok til að segja af sér embætti og sakað hann um að þjóna hagsmunum Orbans og ríkisstjórn