Utanríkisráðherra Norður-Kóreu í opinberri heimsókn í Rússlandi

Utanríkisráðherra Norður-Kóreu, Choe Son Hui, fór í opinbera heimsókn til Rússlands í gær. Ríkisfjölmiðill í Norður-Kóreu greindi frá heimsókninni en utanríkisráðherrann fer til fundar við Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússa.Rússland og Norður-Kórea undirrituðu varnarmálasamning þegar Vladimír Pútín heimsótti Pyongyang árið 2024. Norður-Kórea hefur sent Rússum flugskeyti, hergögn og þúsundir hermanna til að berjast gegn Úkraínuher.Greinendur segja að Rússar leggi á móti til fjárhagslega aðstoð, hernaðarlega tækni, matvæli og orku til Norður-Kóreu sem er einangrað land á alþjóðasviðinu.Rússneski varnarmálaráðherrann Andrei Belousov og fleiri háttsettir menn heimsóttu Pyongyang í apríl. Þá ræddu þjóðirnar um að styrkja hernaðarleg tengsl sín enn frekar. Belousov sagði þá að Rússar væru til
Utanríkisráðherra Norður-Kóreu í opinberri heimsókn í Rússlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd