Bandaríski fáninn á herbúningi hermanns.EPA / HANNIBAL HANSCHKETveir bandarískir hermenn féllu í árásum Írana á Jórdaníu í gær. Miðstjórn bandaríska hersins, CENTCOM, greindi frá þessu í færslu á X. Þá er eins saknað og fjórir særðust í árásunum. Þeir voru fluttir á spítala í Jórdaníu til aðhlynningar en hafa verið útskrifaðir af spítalanum.Aðrir sem hlutu minniháttar áverka eru aftur komnir til starfa.Bandaríski herinn tilkynnti í annarri færslu á X í kvöld að árásir Bandaríkjahers væru hafnar að nýju á skotmörk í Íran. Árásunum er ætlað að draga úr mætti Írana til að ógna skipaumferð um Hormússund og refsa íranska byltingarverðinum fyrir árásirnar á hermennina í Jórdaníu í gær.