Fyrri hluti júlí er sá votasti í Reykjavík frá upphafi mælinga en úrkoma mældist 65 millimetrar. Það er meira en tvöföld meðalúrkoma, sé miðað við árin 1991 til 2020. Trausti Jónsson, veðurfræðingur, hefur gert upp veðurfar á landinu þennan fyrri part mánaðar á bloggi sínu.