Ákvarðanir í ágúst um það sem brýnast er í Grindavík

Ekki má dragast lengur en fram í ágúst að taka ákvarðanir um skólahald og fleira í Grindavík, segir einn stjórnenda við gerð nýs áhættumats fyrir bæinn. Matið fjallar ekki aðeins um vísindalega og verkfræðilega þætti, heldur samfélagið allt.Grindvíkingar hafa í meira en þrjú ár gagnrýnt stjórnvöld fyrir að fá ekki að koma með skoðanir sínar að borðinu við ákvarðanir um mat á hættu við búsetu í bænum. Nú er önnur nálgun notuð.„Og þannig getum við þá skapað sátt um niðurstöðurnar og vonumst þá til að þær skapi þá líka þennan trúverðugleika sem að hefur kannski svolítið skort fram að þessu,“ segir Dóra Hjálmarsdóttir verkfræðingur hjá Verkís. ENGINN TEKIST Á VIÐ HAMFARIR SEM HALDA ÁFRAM Unnið hefur verið að því lengi að móta hvaða leiðir best sé að fara, meðal annars með ráðgjöf frá Alþjóð
Ákvarðanir í ágúst um það sem brýnast er í Grindavík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd