Niðurstöður íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ) undirstrika mikilvægi markvissra sjálfsvígsforvarna, möguleika á snemmtækum íhlutunum og úrræða án hindrana fyrir ungmenni, segir Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, verkefnastjóri sjálfsvígsforvarna hjá Embætti landlæknis.Niðurstöður rannsóknarinnar 2025-2026 benda til aukinnar tíðni sjálfsskaðahegðunar en sambærilegrar tíðni sjálfsvígshugsana meðal íslenskra framhaldsskólanema, samanborið við síðustu mælingar 2023-2024.Bæði sjálfsskaðahegðun og sjálfsvígshugsanir eru ívið algengari meðal stúlkna en stráka, en meira en 35% stúlkna í framhaldsskólum sögðust hafa hugsað um sjálfsvíg einu sinni eða oftar. Rúmlega 27% stúlkna undir 18 ára sögðust hafa stundað sjálfsskaðahegðun, samanborið við um 10% pilta. UNNIÐ AÐ SJÁLFSVÍGSFORVÖRNUM SAMKVÆMT AÐGER