Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók ökumann í dag sem hafði reynt að komast undan. Þegar lögregla hafði hendur í hári hans reyndist hann vera undir áhrifum áfengis og raunar hafði hann aldrei öðlast ökuréttindi.„Ökumaður var því handtekinn og vistaður í fangaklefa þar til að hann væri hæfur í skýrslutöku,“ segir í dagbók lögreglu.Þá stöðvaði lögregla för ökumanns sem ók á 118 km hraða þar sem hámarkshraði var 80 og annars sem ók á 119 km hraða þar sem hámarkshraði er 90.RÚV / Sölvi Andrason