Íslenskur íbúi í Drammen í Noregi segir samfélagið í sárum vegna elds sem enn logar í skóginum við bæinn. Hann vonar að það takist að slökkva eldinn í kvöld eða nótt þegar fer að rigna.Eldur kviknaði í íbúðarhúsi í Krokstadelva í Drammen síðdegis í gær og breiddist hratt út. Baldur Sigurðsson segir að kjöraðstæður hafi verið fyrir útbreiðsluna.„Hús í Noregi eru flest öll búin til úr timbri. Þetta hverfi er fyrst byggt 1970 og fram yfir 80 og húsin eru ansi þétt þarna í hlíðinni, og eins og vindáttin var í gær þá var hún ekki hagstæð með það að gera að þetta blés bara beint inn í hlíðina,“ segir Baldur.Enn logar eldur í skóginum ofan við bæinn en slökkviliði hefur að mestu tekist að hefta útbreiðslu hans. Baldur segist hafa óttast hið versta.„Sem betur fer fór það ekki þannig, það voru um s