Stofnunin NICE, sem heyrir undir heilbrigðisráðuneyti Bretlands, hefur ákveðið að bjóða upp á tvö ný próf til að greina endómetríósu á heilsugæslum á Bretlandi. Þetta verður gert til reynslu næstu þrjú ár. Prófin eru munnvatnspróf annars vegar og próf sem mælir hreyfingar garnanna hins vegar. Bæði prófin notast við gervigreind.Talið er að endómetríósa hrjái einn af hverjum tíu sem fara á blæðingar. Hvað er endómetríósa? Endósamtökin skýra endómetríósu á eftirfarandi hátt:Sjúkdómurinn er gjarnan kallaður endó í daglegu tali, ekki er lengur notast við hugtakið legslímuflakk. Sjúkdómurinn lýsir sér á þann veg að endómetríósufrumur setjast á yfirborðsþekju á hinum ýmsu líffærum, bregðast við mánaðarlegum hormónabreytingum líkamans og valda þar bólgum.Þannig getur einstaklingur með endómetríósu