Ísraelsk stjórnvöld vilja koma upp þremur nýjum landtökubyggðum á Gaza. Þau hyggjast einnig verja rúmlega 400 milljónum bandaríkjadala til uppbyggingar á Vesturbakkanum. Landtökubyggðirnar eru ólöglegar samkvæmt alþjóðalögum.Israel Katz, varnarmálaráðherra landsins, segir stjórnvöld hafa í hyggju að reisa þrjá Nahal-útverði á norðanverðu Gaza. Landtökubyggðirnar hafa gegnt lykilhlutverki í herferðum Ísraela sem hrakið hafa Palestínumenn frá heimilum sínum víða á Vesturbakkanum. Hvað eru Nahal-útverðir? Nahal-útverðir eru hernaðarleg byggðarlög sem hafa gjarnan verið notuð til að undirbúa stofnun varanlegra ísraelskra landtökubyggða.Fyrstu Nahal-byggðirnar voru stofnaðar á sjötta áratugum síðustu aldar, meðal annars umhverfis Gaza. Frá árinu 1967 var sama kerfi notað á á hernumda Vesturbakk