Jens Spahn, þingflokksformaður Kristilegra demókrata og fyrrverandi heilbrigðisráðherra Þýskalands, hefur sagt af sér embætti. Spahn hefur sætt mikilli gagnrýni eftir að greint var frá því að hann og eiginmaður hans hefðu látið staðgögnumóður í Bandaríkjunum ganga með barn fyrir sig.Staðgöngumæðrun er ólögleg í Þýskalandi og Kristilegir demókratar eru andvígir lögleiðingu.Í yfirlýsingu sagði Spahn að það hefði runnið upp fyrir honum síðustu daga að þrá hans til að eignast fjölskyldu væri ósamrýmanleg stjórnmálastarfinu, eins og hann orðaði það. Nokkrum dögum áður hafði Spahn greint frá því að von væri á barni. Tíðindin féllu í grýttan jarðveg frá öllum hliðum þýskra stjórnmála og var Spahn sakaður um hræsni. Þótt ólöglegt sé að greiða fyrir staðgöngumæðrun í Þýskalandi er ekki ólöglegt að