Þyrla aðstoðaði við leit að ferðamanni

Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út skömmu fyrir hádegi vegna erlends ferðamanns sem ekki hafði skilað sér úr göngu ofan við Foss á Síðu á Suðurlandi síðan í nótt. Þyrla Landhelgisgæslunnar, sem var stödd á Höfn þegar útkallið barst, aðstoðaði við leitina.Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir manninn hafa komið í leitirnar heill á húfi snemma á þriðja tímanum.RÚV / Kristófer Óli Birkisson
Þyrla aðstoðaði við leit að ferðamanni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd