Dagrún Fanný ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar

Dagrún Fanný Liljarsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar. Hún hefur starfað sem verkefnastjóri hjá Heislugæslu höfuðborgarsvæðisins, en áður starfaði hún hjá Barnavernd Reykjavíkur.Í tilkynningu frá Strandabyggð segir að Dagrún hafi lokið meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands árið 2016 og BA-gráðu í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands árið 2014. Hún hefur jafnframt lokið námi í mannauðsstjórnun og bókhaldi, auk þess að vera menntuð sjúkraliði.Fimmtán umsóknir bárust um starf sveitarstjóra.Ríflega 400 manns búa í Strandabyggð, en fjölmennasti þéttbýlisstaður er Hólmavík.
Dagrún Fanný ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd