Eldur í Saurvogi í Færeyjum

Eldur kviknaði í íbúðarhúsi í Saurvogi í Færeyjum í hádeginu.Samkvæmt færeyskum fjölmiðlum er eldsvoðinn stór. Fjölmennt lið lögreglu, sjúkraliða og slökkviliðs vinnur að því að ráða niðurlögum eldsins á vettvangi.Saurvogur er þorp á eyjunni Vogum í Færeyjum og hluti af sveitarfélaginu Saurvogi. Þorpið er í um fimm mínútna akstursfjarlægð frá Vogaflugvelli, eina alþjóðaflugvelli Færeyja.Upptök eldsins eru enn óljós. Samkvæmt upplýsingum frá færeysku lögreglunni hafa engar tilkynningar borist um að fólk hafi verið inni í húsinu eða að einhver hafi slasast í eldsvoðanum.Lögreglan hefur hvatt íbúa í Saurvogi til að halda sig fjarri á meðan unnið er að því að ná stjórn á eldinum.
Eldur í Saurvogi í Færeyjum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd