Mestu eldar í Noregi í seinni tíð

Enn hefur ekki tekist að ná fullri stjórn á stórbrunanum í Drammen í Noregi. Það logar í skógi við hverfið þar sem eldurinn braust út í gær. Þó er minni hætta á útbreiðslu hans en áður. Hundrað íbúðir eru ónýtar. Enginn slasaðist alvarlega.Um fjögur hundruð manns þurftu að yfirgefa heimili sín í hverfi í skógi vaxinni hlíð í Drammen síðdegis í gær þegar mikill eldur braust út í húsum þar. Neyðarhjálparmiðstöðvar voru opnaðar og margir fengu gistingu á hótelum í nótt eða hjá vinum og vandamönnum.„Það er áfall að upplifa stórbruna sem hefur áhrif á svo marga íbúa,“ sagði borgarstjóri Drammen, Kjell Arne Hermansen, í viðtali við NRK, norska ríkisútvarpið.„Okkur var sagt að fara og ég greip bara nokkra hluti með mér á leiðinni út,“ sagði Ronny Norstad, einn þeirra sem þurftu að yfirgefa heimil
Mestu eldar í Noregi í seinni tíð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd