Maður sem slasaðist í vinnuslysi í grennd við Kirkjubæjarklaustur í gærkvöld slasaðist alvarlega en er ekki í lífshættu.Í færslu lögreglunnar á Suðurlandi á Facebook segir að tilkynning hafi borist rétt fyrir klukkan 22. Þar hafi maður slasast við vinnu við heyvinnuvél.Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og maðurinn fluttur á bráðadeild.Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins.