Maður sem grunaður er um að standa að baki skotárásinni í Nørresundby norðan við Álaborg í Danmörku í gær hefur játað verknaðinn. Hann var leiddur fyrir dómara í Hjørring í dag.Maðurinn, sem er 48 ára gamall, skaut 62 ára mann til bana. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa reynt að myrða lögreglumann sem særðist á fæti í skotárásinni.Fyrir dómi gekkst maðurinn við því að hafa skotið lögreglumanninn en hann neitaði því að ætlunin hafi verið að bana honum.Hinn grunaði særðist sjálfur í gær og hlaut skotsár á hálsi þegar lögregla svaraði skothríð hans. Hann er ekki lengur í lífshættu og gat því mætt sjálfur fyrir dóminn í dag.Dómari í málinu hafnaði kröfu saksóknara um lokað þinghald og kröfu verjanda um nafnleynd. Hins vegar ákvað hann að leggja frásagnarbann við þinghaldinu og mega fjölmiðl