Meiri úrkoma ekki mælst í Reykjavík fyrri hluta júlí

Úrkoma í Reykjavík var óvenjumikil í fyrri hluta júlí. Hún mældist 65,6 mm, sem er meira en tvöföld meðalúrkoma þess tíma árin 1992 til 2020. Þetta er úrkomusamasti fyrri hluti júlí frá upphafi mælinga í Reykjavík, segir Trausti Jónsson veðurfræðingur í bloggi.Úrkomumet fyrir fyrri hluta júlí féll einnig á Stykkishólmi þar sem mældust 66,6 mm fyrri hluta mánaðar.Á Akureyri hefur hins vegar nær úrkomulaust á Akureyri. mældust 1,3 mm af úrkomu. Það var þó ekki met í lítilli úrkomu, og heldur ekki á Dalatanga þar sem úrkoman mældist aðeins 0,3 mm því árið 1975 mældist þar engin úrkoma fyrri hluta júlímánaðar.Sólskinsstundir í Reykjavík voru 58,4 í fyrri hluta júlímánaðar, 27 stundum minna en í meðalári. Á Akureyri voru sólskinsstundir 83,3, eða átta fleiri en í meðalári.
Meiri úrkoma ekki mælst í Reykjavík fyrri hluta júlí

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd