Hvorki ráðherrar í hollensku ríkisstjórninni né hollenskir embættismenn hafa sagt íslenskum stjórnvöldum að til greina komi að Ísland fái undanþágur frá sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins. Þetta kemur fram í svari hollenska utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins.Í svarinu segir að það sé ekki í verkahring hollenska stjórnarráðsins að segja til um undanþágur enda yrðu þær á forræði annarra. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leiðir samningaviðræður fyrir hönd Evrópusambandsins en þegar á hólminn er komið hefur sérhvert aðildarríki neitunarvald í viðræðunum.Stækkunarstjóri Evrópusambandsins hefur gefið í skyn að undanþágur séu hugsanlegar, en ráðamenn í ESB-löndum hafa ekki viljað gefa nein slík fyrirheit. LOFORÐ, ÞVERT NEI EÐA EINHVERS STAÐAR ÞAR Á MILLI? Tilef