„Þetta er risastórt mál sem þarf að hugsa hratt“

Knútur Rafn Ármann, eigandi og framkvæmdastjóri Friðheima, segist hugsi yfir þróun raforkumála hér á landi. Erlend gagnaver horfi hýru auga til íslensku grænu orkunnar og því sé mikilvægt að stjórnvöld forgangsraði málum þannig að heimili smærri fyrirtæki og þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki verði ekki eftir í samkeppni um orkuna.Ef ekki sé haldið rétt á spilunum gæti það vel farið þannig að raforkuverð á Íslandi verði það dýrasta í Evrópu. Orkan sé jú markaðsvara.Hólmfríður María heimsótti Friðheima á dögunum á Hljóðvegi 1 og fékk þar að forvitnast um ræktunina, ferðaþjónustuna og áskoranirnar sem fylgja garðyrkju á Íslandi.Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.Eigandi Friðheima segir grænu orkuna á Íslandi eftirsótta og telur mikilvægt að stjórnvöld grípi
„Þetta er risastórt mál sem þarf að hugsa hratt“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd