Íranski herinn gerði árásir á bandaríska sjóherstöð í Barein í nótt. Ekki liggur fyrir hvort mannfall eða tjón hafi orðið í árásunum. Íranski herinn gerði einnig árásir á bandarískar herstöðvar í Kúveit og á eldsneytistanka á Al Azraq-herstöðina í Jórdaníu. Jórdanski herinn skaut niður tíu írönsk flugskeyti.Bandaríski herinn greindi frá árásum í Íran í færslu á X. Samkvæmt færslunni voru árásirnar á eftirlitskerfi, hernaðarlega innviði og neðanjarðarvopnabirgðageymslur í Íran.Sprengingar heyrðust í Yazd í mið Íran og í suður Íran. Íranski ríkisfjölmiðillinn IRNA segir að þrír hafi verið drepnir og átta séu særðir eftir árásir bandaríska hersins í Hormozgan-héraði í suður Íran.Íranski byltingarvörðurinn sagði í tilkynningu í gærkvöld á íranska ríkisfjölmiðlinum IRNA að tvö olíutankskip hefð