Stundum hefur verið spurt bæði í gamni og alvöru; hver er aðalmunurinn á NATO og ESB? Og svo kemur svarið; í NATO eru öll mál pólitísk en í ESB geta mál verið bæði pólitísk og lagaleg. Fundir í NATO eru alfarið pólitískir. Í ESB eru fundir þannig að fyrir aftan landsfulltrúann situr lögfræðingur sem hnippir í hann ef hann fer yfir strikið og segir honum hvað hann megi segja og hvað ekki miðað við lög sambandsins.