Franskri arfleifð Fáskrúðsfjarðar er fagnað um helgina, en franskir sjómenn höfðu sína aðalbækistöð í þorpinu frá átjándu öld og fram á þá tuttugustu.Gestir frá Gravelines í Frakklandi, vinabæ Fáskrúðsfjarðar, taka þátt í fögnuðinum. „Við höldum í söguna með fallegum siðum,“ segir Daníel Geir Moritz, einn skipuleggjandi hátíðarinnar. „Þetta skiptir okkur miklu máli, sem og Frakkana.“Hátíðin, „Franskir dagar“, er 30 ára í ár og fer sívaxandi. „Það er bara ótrúlega gaman að koma að þessu og sjá hvað Fáskrúðsfirðingum þykir vænt um hátíðina sína,“ segir Daníel.Allt er tilbúið fyrir brekkusöng og glæsilegt úrval tónlistarmanna sem þar koma fram. „Svo er náttúrulega óhætt að segja að allt sé skemmtilegra í góðu veðri.“