Stjórnvöld í Venesúela fá 346 milljóna dala lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til uppbyggingar í landinu eftir jarðskjálftana. Lánið verður nýtt til að útvega fólki húsnæði, uppbyggingu innviða, nauðsynlega þjónustu og til að sinna öðrum þörfum íbúa landsins sagði Delcy Rodriguez, settur forseti, í færslu á Telegram.Yfirvöld í Venesúela hafa staðfest að 5.069 fórust og 16.740 slösuðust í jarðskjálftunum. Yfir 20.000 manns eru heimilislausir og hafast við í tjaldbúðum margir við slæmar aðstæður.Kristalina Georgieva, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að búið sé að veita lánið.Venesúela á sérstök dráttarréttindi hjá sjóðnum, sem jafngildir um 5,1 milljarði bandaríkjadala. Landið missti þó réttindin um tíma því sjóðurinn viðurkenndi ekki Nicolas Maduro sem forseta og samskipti m