Árás var gerð á vöruhús rússneskrar tískukeðju, Wildberries, í borginni Kotovsk í Tambov-héraði í vestur Rússlandi í nótt. Ríkisstjórinn Evgeny Pervyshov segir að sjö hafi verið drepnir í árásinni á vöruhúsið og 24 séu særðir.Kyiv Independent greinir einnig frá árás á vöruhús Wildberries í Elektrostal, sem er borg skammt frá Moskvu.Þá var árás gerð á olíubirgðastöð í borginni Noginsk, sem er í um 50 km fjarlægð austur af Moskvu. Íbúar á svæðinu hafa birt ljósmyndir og myndskeið á samfélagsmiðlum af þykkum reykjamökki frá birgðastöðinni.Borgarstjóri Moskvu, Sergei Sobyanin, sagði á samskiptaforritinu MAX að 370 drónum hefði verið stefnt á borgina en loftvarnakerfi hefði stöðvað flesta drónanna úr mikilli fjarlægð.