Donald Trump Bandaríkjaforseti hótar því að setja nýja tolla á Kanada vegna mikillar loftmengunar sem hefur borist frá Kanada til Bandaríkjanna vegna skógarelda í Kanada.Ríflega 880 skógareldar geisa í Kanada og mikill meirihluti þeirra brennur stjórnlaust. Yfir 190 þeirra loga í Ontario og hefur mikil loftmengun borist yfir landamærin til Minnesota, Michigan, Pennsylvaníu, Ohio og New York í Bandaríkjunum.Bandaríkjaforseti sagði í færslu á Truth Social að það væri óásættanlegt að Bandaríkin væru að fá til sín skítugt, mengað og óheilsusamlegt loft að óþörfu. Hann sagðist ætla að hringja í forsætisráðherra Kanada og krefjast skýringa því Kanada væri ekki að viðhalda skóglendi sínu nægilega vel. Trump sagði að mengunin væri að kosta Bandaríkin milljarða dollara og kostnaðinum vegna mengunar