Íranski byltingarvörðurinn sagði í tilkynningu fyrr í kvöld á íranska ríkisfjölmiðlinum IRNA að tvö olíutankskip hefðu sprungið í kvöld þegar skipin sigldu á tundurdufl í Hormússundi. Miðstjórn bandaríska hersins sendi frá sér tilkynningu fyrir skömmu á X þar sem segir að þessi fullyrðing sé ósönn.Íranski byltingarvörðurinn segist hafa stöðvað fjögur skip sem reyndu að sigla um sundið. Byltingarvörðurinn segir að skipin hafi reynt að sigla um sundið með stuðningi bandaríska hersins en þau hafi verið stöðvuð með flugskeyta- og drónaárás.Íranar hafa reynt að beina öllum siglingum um Hormússund norðanmegin við sundið til að geta stýrt þeim Íransmegin við sundið.Fimm sprengingar heyrðust í Yazd í mið Íran í kvöld og þá greindi írönsk fréttastofa, Mehr, frá því að fjöldi sprenginga hefði heyrst