Enn ekki náðst að slökkva eldinn í Drammen

Slökkvilið hefur enn ekki náð tökum á stórbrunanum í Drammen í Noregi. Eldurinn kviknaði í raðhúsahverfi síðdegis og hefur breiðst út í fleiri hús og nærliggjandi gróður. Yfir hundrað íbúðir eru gjöreyðilagðar og mörg hundruð manns hafa verið flutt frá heimilum sínum.Samkvæmt norska ríkisútvarpinu voru einn íbúi og einn slökkviliðsmaður fluttir á bráðamóttöku með væga reykeitrun en ekki er vitað um aðra slasaða og engra er saknað. Átta lögreglumenn urðu fyrir reykeitrun við rýmingu svæðisins.Enn er hætta á að eldurinn breiðist frekar út og hann blossar reglulega upp á nýjum stöðum. Slökkvistarf mun halda áfram í nótt og fram á morgundaginn.Yfir hundrað íbúðir brunnu til kaldra kola.EPA / Thomas Fure
Enn ekki náðst að slökkva eldinn í Drammen

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd