Íslenskur sjávarútvegur, yfirráð Íslendinga yfir auðlindum hafsins í kringum Ísland og nýtingu þeirra – þetta er jafnan eitt mesta hitamálið þegar tekist er á um kosti og galla hugsanlegrar Evrópusambandsaðildar og jafnvel aðildarviðræðna. Áhrif inngöngu í ESB á þessu sviði eru sögð frá því að vera óveruleg allt upp í algjört afsal á stjórn og nýtingarrétti íslenskra fiskistofna til framkvæmdastjórnar ESB í Brussel, og allt þar á milli.Einarðir andstæðingar aðildar, og aðildarviðræðna, segja stefnuna fela í sér að Ísland verði að fylgja henni í einu og öllu. Það felist einfaldlega í heiti hennar – sameiginleg sjávarútvegsstefna – að hún gildi jafnt um öll ríki Evrópusambandsins og þar af leiðandi sé ekkert um að semja. Í það minnsta ekkert sem haggi þessu grundvallaratriði, nefnilega frams