Fjöldi íbúða og heimila sem tapast hafa í stórbruna í Drammen í Noregi er kominn yfir hundrað. Arnar Jakobsson, sem búsettur hefur verið ytra síðastliðin tuttugu og sex ár, segist hafa mætt lögreglu- og slökkviliðsbíl um klukkan 15:35 síðdegis að staðartíma. „Þá leit ég upp í brekku og sá alelda hús,“ segir Arnar.