Eldur logar í Drammen í Noregi þar sem yfir hundrað íbúðir hafa brunnið til kaldra kola. Mikill viðbúnaður slökkviliðs er á staðnum sem hefur enn ekki náð tökum á eldinum. Vegna vinds breiðist eldurinn hratt út. Hann breiðist í næsta hverfi og hefur læst sig í skóga nálægt raðhúsunum. ENGIN SLYS ORÐIÐ Á FÓLKI Tilkynnt var um eld í íbúð í raðhúsi klukkan hálf fjögur að staðartíma í Noregi síðdegis. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði á vettvangi er erfitt að eiga við eldinn.Ekki er talið að nein alvarleg slys hafi orðið á fólki en nokkrir íbúar voru fluttir á sjúkrahús. Einn slökkviliðsmaður slasaðist lítillega. ÍBÚAR BEÐNIR UM AÐ YFIRGEFA SVÆÐIÐ OG LOKA GLUGGUM Mörg hundruð manns hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín. Mælst var til þess í neyðarskilaboðum sem send voru á íbúa.„Yfi