Biður fólk að bíða með gagnrýni þar til gatnamótin eru tilbúin

Talsverðar umferðartafir hafa orðið á gatnamótum Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar síðan opnað var fyrir umferð um nýja Breiðholtsbrú fyrir viku. Mikil umræða hefur skapast á samfélagsmiðlum þar sem skipst er á að kenna Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ eða Vegagerðinni um tafirnar.Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar, segir ástandið tímabundið.„Við erum enn þá í framkvæmd og gatnamótin eru ekki komin í fulla virkni. Það eru akreinar sem eru ekki komnar í notkun þannig að þetta er bara bráðabirgða, tímabundið ástand eins og það er í dag.“ GATNAMÓTIN MUNU VIRKA EINS OG TIL VAR ÆTLAST Til að liðka fyrir umferðarflæði verður ljósastýringin við gatnamótin fínstillt. Guðmundur býst við að gatnamótin verði komin í fulla virkni í byrjun september.Enn þá eru fra
Biður fólk að bíða með gagnrýni þar til gatnamótin eru tilbúin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd