Bresk stjórnvöld hyggjast draga úr beinni þróunaraðstoð til sumra Afríkuríkja um allt að 90% á næstu þremur árum. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu breska utanríkisráðuneytisins.Samkvæmt upplýsingum frá bresku hjálparsamtökunum Bond verða framlög breskra stjórnvalda til Mósambík og Malaví skorin niður um 90% fram til ársins 2029. Framlög til Rúanda og Síerra Leóne minnka um 80% og til Sómalíu um 49%.Á síðasta ári ákvað ríkisstjórn Verkamannaflokksins að draga umtalsvert úr þróunaraðstoð til að fjármagna aukin útgjöld til varnarmála. Þá vilja stjórnvöld beina auknu fjármagni til alþjóðlegra stofnana á borð við Alþjóðabankann, sem þau telja geta nýtt fjármunina með skilvirkari hætti.Hjálparsamtök víða um heim hafa gagnrýnt niðurskurðinn harðlega. Þau segja hann stofna mikilvægum verkefnum