Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti tvo á Landspítalann rétt í þessu eftir fjórhjólaslys norðan Hólmavíkur. Landhelgisgæslan hefur brugðist við þremur þyrluútköllum það sem af er degi, þetta segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.Fyrr í dag var þyrlan kölluð í Stykkishólm vegna aflvana fiskbáts. Töluverður viðbúnaður var vegna skipsins en enginn slasaðist. Sex voru um borð í bátnum.Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning um atvikið skömmu eftir hádegi og ásamt þyrlusveit voru sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar og björgunarskip frá Rifi og Stykkishólmi kölluð á vettvang. Þá voru bátar í grenndinni beðnir um að fara á vettvang til aðstoðar. ÞRÍR SLASAÐIR FLUTTIR MEÐ ÞYRLU Í fyrstu var talið að akkeri, sem áhöfnin lét falla, næði ekki að stöð