Fulltrúar allra sveitarfélaga á landinu segja skorta fullnægjandi svör frá ráðuneytum og stofnunum um það hvernig umfangsmikilli tilfærslu heilbrigðiseftirlits verður háttað. Þingið samþykkti nýverið að flytja meginverkefni núverandi heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga til nýrrar Stofnunar atvinnuveganna og Umhverfis- og orkustofnunar.