Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Niðurgreiða nýtt lyf til þyngdarstjórnunar

Sjúkratryggingar Íslands ætla hér eftir ekki að niðurgreiða lyfið Saxenda til notkunar við þyngdarstjórnun en niðurgreiða nýtt lyf sem nefnist Wegovy, fyrir þau sem uppfylla tiltekin skilyrði. Skilyrðin byggja á að einstaklingur sé í skilgreindri ofþyngd og með alvarlega þyngdartengda sjúkdóma.Um nokkurt skeið hefur verið skrifað upp á lyfin Saxenda og Ozempic, sem þróuð voru sem sykursýkislyf, til notkunar við þyngdarstjórnun. Aðeins Saxenda hefur fengist niðurgreitt af Sjúkratryggingum en með þröngum skilyrðum þó.Nýja lyfið Wegovy inniheldur sama virka efni og Ozempic og verður hér eftir eina lyfið sem hægt verður að fá niðurgreitt til notkunar við þyngdarstjórnun. Eftir sem áður geta læknar skrifað upp á hin lyfin til þyngdarstjórnunar en sjúklingar bera sjálfir fullan kostnað. RÝMRI

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta