Fyrrverandi formaður Kennarasambandsins gagnrýnir að forgangsraða eigi námsefni í stærðfræði þegar stærsti vandinn liggi í lesskilningi. Hann segir menntamál hafa verið í ólestri í meira en áratug og að vinnubrögð í menntamálaráðuneytinu hafi síst batnað með nýjum ráðherra.„Vandinn liggur í því að efla orðaforða og tilfærslu íslensks máls á milli kynslóða en ekki tilfallandi hlutir sem ráðuneytið finnur í einhverri skoðanakönnun,“ segir Ragnar Þór Pétursson, kennari og fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands, og vísar til tilkynningar frá mennta- og barnamálaráðuneytinu.Þar er farið yfir niðurstöður greiningar á stöðu námsgagna í stærðfræði og lagt til að stærðfræði verði skilgreind sem forgangsverkefni næstu þriggja ára.„Það sem vekur spurningarnar á mér eru vinnubrögðin í ráðuneytin