Stórbruni í Drammen

Eldur kom upp í íbúðarhúsi í Drammen í Noregi síðdegis í dag. Eldurinn hefur dreift sér hratt út til nærliggjandi húsa og er enn mikill viðbúnaður slökkviliðs á staðnum. Ekki hefur enn náðst að ráða niðurlögum eldsins.NRK greinir frá.Tilkynnt var um eld í íbúðarúsi klukkan hálf fjögur á staðartíma í Noregi síðdegis. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði á vettvangi er erfitt að eiga við eldinn og hefur hann breiðst út til nærliggjandi húsa.Slökkvilið frá nærliggjandi bæjum eru á leiðinni á vettvang til að aðstoða við slökkvistörf. Sprengingar heyrast á vettangi og er fólk beðið um að halda sig fjarri. Upptök eldsins eru enn ókunn.Fréttin verður uppfærð.
Stórbruni í Drammen

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd