Landssamband hestamannafélaga skorar á ráðamenn að endurskoða fjárframlög til reiðvega. Í yfirlýsingu segir að skortur á fjármagni í málaflokkinn ógni öryggi hestamanna. Verði ekkert aðhafst sé Alþingi að bregðast þúsundum hestamanna og láta elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.Samkvæmt samgönguáætluninni sem ríkisstjórnin samþykkti í vor verður árlegt framlag ríkisins til reiðvegamála hundrað milljónir króna næstu fimmtán árin. Það er þriðjungur þess framlags sem starfshópur, sem skipaður var af innviðaráðherra árið 2022, lagði til.Linda Björk Gunnlaugsdóttir, formaður Landssambands hestamannafélaga, segir upphæðina í samgönguáætlun til ársins 2040 ekki standast skoðun. Annað hvort verði að tengja framlagið við vísitölu eða endurskoða upphæðina.Hún ræðir málið á Hljóðvegi 1.Forma