Vegna mikils álags hafa HEF veitur beðið íbúa og gesti á Hallormsstað að fara sparlega með vatnið næstu daga. Á síðu HEF veitna segir að mikið álag sé á vatnsveitunni og brunndælur farnar að erfiða við að standa undir eftirspurninni.Veðurblíða hefur gælt við Austurland síðustu daga og enn sér ekki fyrir endann á henni. Fjöldi Íslendinga hefur elt sólina og dvelur nú á Hallormsstað. EINS OG LÍTIÐ ÞORP Bergrún Arna Þorsteinsdóttir aðstoðarskógarvörður segir stöðuna á vatni góða enn sem komið er.„Í rauninni er verið bara að pæla í því að það verði nóg vatn handa öllum, að við spörum vatn svo við verðum ekki vatnslaus. Það er betra að byrgja brunninn áður en maður dettur ofan í hann. Staðan er í rauninni ágæt en þegar er svona mikið af fólki í skóginum og mikil vatnsnotkun að vera ekki að n