Almennt gjald fyrir útgáfu nýrra vegabréfa hækkaði úr 14 þúsund krónum í 19 þúsund krónur á milli ára. Gjald fyrir hraðafgreiðslu hækkaði um 11.200 krónur og er nú 39.200. Verðskráin hækkaði talsvert umfram verðlag til að endurspegla betur tíma og kostnað ríkisins að sögn ráðuneytisins.