Það er kominn miður júlí og landsmenn gleðjast og fagna víða um land. Á Drangsnesi er haldin bryggjuhátíð sem á sér langa sögu.Ísabella Benediktsdóttir Petersen, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, segir allt klárt fyrir hátíðarhöld sem hefjast hvað úr hverju. „Núna er bara komið að því að fara að njóta, taka á móti gestum og fagna þessu afmæli,“ segir hún en í ár er þrjátíu ára afmæli bryggjuhátíðarinnar.„Við leggjum mikla áherslu á að það sé eitthvað fyrir alla og við erum með mjög þétta dagskrá í ár. Hápunktur fyrir marga er að sjálfsögðu sjávarréttasmakkið hjá kvenfélaginu Snót,“ segir Ísabella. STEMNING AÐ TJALDA Í GÖRÐUM Þar að auki verður dagskrá fyrir börnin, markaðstorg, dorgveiðikeppni og töfrasýning auk þess sem gestum og gangandi býðst að prófa skotfimi og að sigla kajak. Kvöldið