Skipverjar Hvals 8 gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að aflífa langreyði, sem skjóta þurfti fjórum sinnum, eins hratt og mögulegt var. Þetta er niðurstaða rannsóknar Matvælastofnunar á málinu.Langreyðurin var skotin með fjórum sprengiskutlum og það tók um 31 mínútu fyrir dýrið að drepast. Rannsókn Matvælastofnunar sýndi að skipverjar hefðu brugðist við samkvæmt verklagi. Í tilkynningu segir að fyrsta skotið hafi hæft dýrið innan æskilegs marksvæðis, sem og tvö af þremur endurskotum. Stofnunin hafi ekki gögn sem bendi til þess að skotmaður hefði getað skotið öðru skoti fyrr en gert var, né gripið til annarra aðgerða sem linað hefðu þjáningar dýrsins.Hvalur hf. hafi því fylgt reglugerð um veiðar á langreyðum eða lögum um velferð dýra. Málinu sé því lokið. „REGLUGERÐIN ER EKKI SKÝRARI