Héraðsdómur Reykjaness dæmdi mann í dag til átján mánaða fangelsisvistar fyrir að reyna að smygla kókaíni í vökvaformi til landsins. Maðurinn var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í maí. Maðurinn var með 1.480 millilítra af kókaíni með 51-55% styrkleika. Efnin faldi hann innvortis. Maðurinn tók að sér að flytja þau hingað gegn greiðslu. Maðurinn játaði sök og krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa.Smyglið uppgötvaðist 24. maí og hefur maðurinn sætt gæsluvarðhaldi frá 25. maí. Það dregst frá refsingu hans.Héraðsdómur Reykjaness.Þórgunnur Oddsdóttir