Haukur Már Sigurðsson, eigandi verslunarinnar Fjölvals á Patreksfirði, segist afgreiða um hundrað færri viðskiptavini á dag eftir að ferjan Baldur hætti að sigla yfir Breiðafjörð.Hann segir verslunina þjónusta samfélagið á sunnanverðum Vestfjörðum á ársgrundvelli en að ferðamannastraumurinn sem fylgi sumrinu bæti iðulega upp tapið í rekstrinum sem verði á hinum tímum ársins. Þannig bjargi ferðamannatíminn rekstrinum.„Þetta er búið að hafa þau áhrif á okkur að samdrátturinn virðist vera einhvers staðar í kringum 20 til 25 prósent — beinn samdráttur,“ segir Haukur í viðtali á Hljóðvegi 1.Vestfirski miðillinn BB.is vakti fyrst athygli á málinu. NÝBÚIN AÐ RÁÐA FLEIRA STARFSFÓLK Haukur Már segir brotthvarf Baldurs hafa áhrif á allt samfélagið á sunnanverðum Vestfjörðum. Ákvörðunin hafi í ofa