Íranar réðust á bandarískar orrustuþotur í Jórdaníu

Bandaríkjamenn réðust á borgaralega innviði í Íran í nótt. Íranski byltingarvörðurinn svaraði með árásum á bandarísk skotmörk víða um Mið-Austurlönd.Íranar segja Bandaríkjaher hafa ráðist á brýr, lestarstöð, flugvöll og raforkumannvirki í nótt. Sjö hafi verið drepnir í árásum á Hormozgan-hérað í suðurhluta landsins.Herstjórn Bandaríkjanna, CENTCOM, segir árásunum ætlað að draga enn frekar úr hernaðargetu Írans.Íranski byltingarvörðurinn gerði gagnárásir á ratsjárstöðvar Bandaríkjanna í Óman og skotmörk í Kúveit og Bahrein. Þá segist byltingarvörðurinn einnig hafa ráðist á stjórnstöð bandarískra hersveita í Sýrlandi og orrustuþotur Bandaríkjamanna í Jórdaníu.Bandaríkin og Íran takast enn á um yfirráð yfir Hormússundi, einni mikilvægustu siglingaleið heims fyrir olíuflutninga. Átökin hafa st
Íranar réðust á bandarískar orrustuþotur í Jórdaníu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd