Burnham orðinn leiðtogi Verkamannaflokksins

Andy Burnham hefur tekið við embætti leiðtoga breska Verkamannaflokksins. Hann tekur við forsætisráðherraembættinu á mánudag.Burnham tekur við af Keir Starmer, sem í júní tilkynnti að hann hygðist láta af embætti. Starmer er forsætisráðherra þar til hann gengur á fund Karls konungs á mánudag og biðst lausnar. Þá fer Burnham í konungshöllina þar sem konungur felur honum umboð til að mynda nýja ríkisstjórn.Leið Burnhams að leiðtogasætinu hefur ekki verið greið. Hann lenti í fjórða sæti í leiðtogakjöri 2010 og tapaði fyrir Jeremy Corbyn 2015. Tveimur árum síðar yfirgaf hann þingið til að verða borgarstjóri í Manchester. Hann varð því að tryggja sér þingsæti að nýju til að geta sóst eftir embætti forsætisráðherra. Framkvæmdastjórn flokksins, undir stjórn Starmers, stöðvaði fyrstu tilraun Burnh
Burnham orðinn leiðtogi Verkamannaflokksins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd