Framandleg sundferð á Íslandi varð að verðlaunamynd

Teiknimynd um sundferðir ungs innflytjanda á Íslandi og þörfina fyrir félagsleg tengsl hlaut fyrstu verðlaun í flokki stuttmynda á virtri franskri kvikmyndahátíð. Leikstjóri og handritshöfundur byggir söguþráðinn að hluta til á eigin reynslu.„Myndin var frumsýnd í Annecy í Frakklandi, bara núna í júní, og það var frábært af því að Annecy er stærsta animation-hátíð í heiminum,“ segir Fan Sissoko, kvikmyndagerðarkona. ÞARF AÐ BÍTA Á JAXLINN TIL AÐ BRÁÐNA EKKI OFAN Í SUNDLAUGINA Fan Sissoko skrifaði handritið, teiknaði persónurnar og leikstýrði teiknimyndinni Sundruð sem hlaut á dögunum fyrstu verðlaun í flokki stuttmynda á hinni virtu hátíð Annecy Animation Festival í Frakklandi. Myndin fjallar um Neemu, ungan innflytjanda á Íslandi, sem upplifir félagslegt tengslaleysi í vikulegum sundfe
Framandleg sundferð á Íslandi varð að verðlaunamynd

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd