Maðurinn sem var sóttur í Glerárdal, suður af Akureyri, í gærkvöld er látinn. Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni.Tilkynning um slasaðan hjólreiðarmann í Glerárdal barst lögreglunni á sjöunda tímanum í gær.Allar björgunarsveitir í Eyjafirði voru kallaðar út á næst hæsta forgangi. Í kjölfarið var kallað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þyrlan flutti hann á sjúkrahúsið á Akureyri þar sem hann var úrskurðaður látinn.Í tilkynningu lögreglunnar segir að um veikindi hafi verið að ræða og að málið sé til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.